Fara beint í efni
Betri samgöngur

Yfirlit frétta

  • Tveggja daga lokun stígs við Arnarneslæk

    Stígur við Arnarneslæk verður lokaður í tvo daga, mánudaginn 28. september og þriðjudaginn 29. september, vegna lokaframkvæmda við stígagerð á svæðinu.

  • Samgönguvika 2026  

    Samgönguvika 2026  

    Samgönguvika fer fram dagana 16.–22. september og að venju verður fjölbreytt dagskrá á höfuðborgarsvæðinu.

  • Umferðaröryggi bætt við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar

    Framkvæmdir eru að hefjast við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar til að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Að sögn Vegagerðarinnar, sem hefur umsjón með verkinu, er áætlað er áætlað að því ljúki um mánaðamótin september-október. Nánar um framkvæmdina:

  • Hjólastígar á góðri framkvæmdaleið

    Töluverður framgangur hefur verið í uppbyggingu hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Nýr hjólastígur við Fjarðarhraun er nú tilbúinn en hann liggur samsíða Fjarðarhrauni, frá Fjarðarkaupum að Flatahrauni við Kaplakrika. Stígurinn var lagður samhliða veituframkvæmdum og jafnframt ráðist í endurbætur á þverunum við Hólshraun, Bæjarhraun og Flatahraun. Framkvæmdir vestan Hafnarfjarðarvegar í Garðabæ hafa vart farið fram hjá þeim sem hjóla þessa vinsælu leið. Þar er verið að tvöfalda stígakerfið með aðskildum göngu- og hjólastígum sitt hvorum megin við undirgöngin við Arnarneshæð. Framkvæmdirnar hafa ekki gengið alveg áfallalaust fyrir sig og má það fyrst og fremst rekja til steypuvinnu á undirstöðum nýrrar hjólabrúar yfir lækinn í Garðabæ. Unnið er að því að leysa þau mál svo hægt verði að ljúka framkvæmdunum. Við sveitarfélagamörk Kópavogs og Garðabæjar, við enda Súluness, standa jafnframt yfir veituframkvæmdir fyrir nýtt íbúðahverfi í Arnarlandi sem seinka lokafrágangi stígagerðarinnar.

  • Ný brú yfir Breiðholtsbraut opnuð fyrir umferð á morgun

    Opnun nýrrar brúar yfir Breiðholtsbraut á morgun föstudag er stór áfangi í umfangsmiklum framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík. Breytingar verða á umferð á Breiðholtsbraut, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs þegar brúin verður tekin í notkun í fyrramálið. Loka þarf þessum hluta Breiðholtsbrautar, frá kl. 23:00 í kvöld til kl. 06:00 í fyrramálið á meðan unnið er að undirbúningi fyrir færslu umferðar. Auk opnun brúarinnar verða ný umferðarljós við gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar tekin í notkun. Jafnframt verður umferð hleypt á Arnarnesveg milli Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar, auk þess sem nýr hluti Vatnsendavegar milli Arnarnesvegar og Vatnsendahvarfs verður opnaður.

  • Famkvæmdir við Arnarnesveg vel á veg komnar

    Nýr Arnarnesvegur og tengdar framkvæmdir eru óðum að taka á sig mynd. Unnið er við uppsetningu umferðarljósa við gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar og er áætlað að opna þennan veghluta fyrir umferð um næstu mánaðamót. Á morgun, fimmtudag, verður umferð færð yfir á syðri akrein milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs vegna framkvæmda við ný vegamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar. Vinna við færslu umferðarinnar hefst klukkan 6 að morgni og henni lýkur um kl. 9 á föstudag. Arnarnesvegur er eitt af stofnvegaframkvæmdum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, það fjórða af samtals níu. Góður gangur er í framkvæmdunum milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Nýja brúin yfir Breiðholtsbraut verður brátt tilbúin en þar er unnið að frágangi, ásamt vegtengingum sitt hvoru megin við brúna, eða frá Breiðholtsbraut að Vatnsendavegi. Á brúnni er bæði akbraut og göngu- og hjólastígur.

  • Kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks haldinn 1. júní

    Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur boða til opins kynningarfundar vegna Sæbrautarstokks mánudaginn 1. júní næstkomandi klukkan 17:00 í Vogaskóla. Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmálanum og verður staðsettur á tæplega 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði Sæbrautarstokks verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð. Markmið stokksins er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.

  • Stígakerfið stækkar í sumar

    Uppbygging á stígakerfi höfuðborgarsvæðisins miðar vel áfram og hafa Betri samgöngur undirritað verksamning um næsta áfanga verkefnisins „Þrír stígar“. Framkvæmdir hefjast í Garðabæ og Kópavogi í júní. Verkefnið felur í sér gerð aðskilinna göngu- og hjólastíga ásamt stígalýsingu, nýjum skiltum og merkingum á tveimur framkvæmdarsvæðum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki fyrir árslok en þær eru hluti af Samgöngusáttmálanum. Um er að ræða framhald fyrri framkvæmda sem staðið hafa yfir undanfarið ár í Hafnarfirði og Garðabæ. Framkvæmdakaflinn í Garðabæ liggur meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Breiðási að Álftanesvegi í Engidal. Í Kópavogi verða lagðir stígar meðfram Hafnarfjarðarvegi við Voginn, frá undirgöngum við Kópavogstún að sveitarfélagamörkum Garðabæjar.

  • Útboð á stöðvabúnaði Borgarlínu auglýst

    Betri samgöngur hafa auglýst útboð á framleiðslu og afhendingu stöðvabúnaðar fyrir Borgarlínu. Um er að ræða mikilvægan áfanga í undirbúningi fyrstu lotu Borgarlínunnar, þar sem hönnun stöðvanna færist nú yfir á næsta stig. Útboðið snýr að innkaupum, framleiðslu og afhendingu búnaðar sem mun móta ásýnd og upplifun farþega á stöðvum Borgarlínu. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og frestur til að senda inn fyrirspurnir er til 8. júní næstkomandi. Gert er ráð fyrir að samið verði við einn birgi á grundvelli rammasamnings. Fyrsti hluti samningsins tekur til 26 stöðva í fyrstu lotu Borgarlínunnar, sem nær frá Krossamýrartorgi að Hamraborg. Hver stöð samanstendur af tveimur brautarpöllum, einum í hvora akstursstefnu. Auk þess er gert ráð fyrir möguleika á frekari innkaupum vegna annarra lota Borgarlínunnar á gildistíma rammasamningsins.

  • Fjárfest í samgönguinnviðum fyrir 6,2 milljarða árið 2025

    Fjárfestingar Betri samgangna í samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu í fyrra voru tæplega 6221 milljónir króna. Umfangið er sambærilegt við fyrra ár þegar fjárfestingar jukust mikið í kjölfar uppfærslu Samgöngusáttmálans árið 2024. Þetta kom fram á aðalfundi Betri samgangna sem var haldinn í gær. Engar breytingar voru gerðar á stjórn fyrirtæksins og Eyjólfur Árni Rafnsson verður áfram stjórnarformaður. Góður gangur í verkefnum sáttmálans Samkvæmt skýrslu stjórnar, sem flutt var á fundinum, er almennt góður gangur í undirbúningi verkefna og framkvæmdum við stofnvegi jafnt sem Borgarlínu og göngu- og hjólastíga. Betri samgöngur voru með fimm útboð á árinu 2025 og það sem af er þessu ári hafa sjö verkefni verið boðin út. Framkvæmdir við Arnarnesveg og tengd mannvirki miðar vel áfram og áætlað að þeim ljúki í nóvember á þessu ári. Framkvæmdir fyrir smíði Fossvogsbrúar eru hafnar á Kársnesi í Kópavogi og vinna við landfyllingar Reykjavíkurmegin klárast í sumar. Þá fjármögnuðu Betri samgöngur í gegnum Samgöngusáttmálann fjórar framkvæmdir á göngu- og hjólastígum á árinu. Mest fjárfest í stofnvegum Samkvæmt ársreikningi var mest fjárfest í stofnvegaframkvæmdum eða fyrir tæpa 3,7 milljarða króna. Tæpir 1,7 milljarðar fóru í undirbúning og framkvæmdir fyrir Borgarlínuna, rúmar 529 milljónir króna í uppbyggingu göngu- og hjólastíga og tæpar 335 milljónir fóru í undirgöng og öryggis- flæðisbætandi aðgerðir. Alls nema fjárfestingar því tæpum 6221 milljónum króna en voru tæpar 6226 milljónir árið 2024.

  • Hönnun gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar í útboð

    Vegagerðin ásamt Veitum hefur auglýst eftir tilboðum í for- og verkhönnun á nýjum endurgerðum gatnamótum Reykjanesbrautar og Búastaðarvegar, ásamt þriðju lotu Borgarlínu sem mun ná frá Stekkjarbakka að fyrirhugaðri skiptistöð í Vogabyggð. Verkefnið er hluti af stofnvegaframkvæmdum Samgöngusáttmálans. Verkið felst í megindráttum í for- og verkhönnun á:

  • Aðalfundur Betri samgangna 2026

    Aðalfundur Betri samgangna ohf. árið 2026, vegna starfsársins 2025, verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2026, kl. 15:00, í fundarsal A á Iceland Parliament Hotel, Thorvaldsensstræti 2, 101 Reykjavík.

  • Þorsteinn R. Hermannsson ráðinn framkvæmdastjóri

    Stjórn Betri samgangna samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl síðastliðnum að ráða Þorstein R. Hermannsson sem framkvæmdastjóra Betri samgangna og var gengið frá ráðningu hans fyrir helgi. Alls bárust níu umsóknir um starfið. Starf framkvæmdstjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars þegar Davíð Þorláksson lét af störfum til að taka við…