Fimm tilboð bárust í hönnun gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar og hluta Borgarlínu
Vegagerðin auglýsti í apríl eftir tilboðum í for- og verkhönnun á nýjum endurgerðum gatnamótum Reykjanesbrautar og Búastaðarvegar, ásamt þriðju lotu Borgarlínu sem mun ná frá Stekkjarbakka að fyrirhugaðri skiptistöð í Vogabyggð. Fimm tilboð bárust í verkið en fyrri opnun tilboða hjá var 20. ágúst. Eftirtaldir aðilar lögðu fram tilboð:

- Efla hf.
- exa nordic ehf.
- Hnit verkfræðistofa hf.
- Verkís hf.
- VSÓ Ráðgjöf efh.
Verkið felst í megindráttum í for- og verkhönnun á:
- Nýrri brú fyrir umferð bíla, sem aka norður Reykjanesbraut á leið inn á Bústaðaveg. Brúin kemur í stað núverandi ljósagatnamóta en miðeyju Reykjanesbrautar verður lokað og vinstri beygja frá Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut aflögð. Við vestari akbraut Reykjanesbrautar verða að- og fráreinar þar sem einungis verða mögulegar hægribeygjur inn og út af Bústaðavegi.
- Sérakreinum Borgarlínu, fyrir hvora akstursstefnu meðfram austurkanti Reykjanesbrautar frá Stekkjarbakka að Vogabyggð, ásamt framlengingu tveggja undirganga undir Reykjanesbraut.
- Tveimur nýjum brúm á Vesturlandsvegi. Þar mun Borgarlína þvera Vesturlandsveg undir tveimur nýjum brúm.

Til að skapa rými fyrir Borgarlínu og forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals er gert ráð fyrir að Reykjanesbraut verði hliðrað til vesturs á kafla við gatnamótin. Þá er innifalið í verkinu for- og verkhönnun á breytingum lagna Veitna ohf. Um er að ræða fráveitu, hitaveitu og rafveitu.
Í kjölfar yfirferðar tilboða og undirritunar hönnunarsamningsins verður hafist handa við forhönnun verkefnisins. Vinna við gerð nýs deiliskipulags er að hefjast ásamt breytingum á aðliggjandi deiliskipulagsáætlunum og breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.




