Fara beint í efni
Betri samgöngur

Borgarlínan

Hágæða BRT almenningssamgangnakerfi sem mun aka að mestu í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig styttist ferðatími og tíðni ferða eykst.

Framkvæmd Borgarlínu er í höndum Betri samgangna og hefur verið skipt í 6 framkvæmdalotur sem verða framkvæmdar 2024-2040.

Íbúðir í göngufjarlægð frá biðstöð

7 af 10

70% íbúða verða 400 m. eða minna frá biðstöð með undir 10. mín. tíðni.

Heildarfjárfesting

127.936 m.

42% af fjárfestingum Samgöngusáttmálans. Áætlað Q4 2024.

Verkefnin

  • Lota 1: Ártúnshöfði → Hlemmur → Hamraborg

    Fyrsta lota Borgarlínunnar liggur frá Hamraborg í Kópavogi, yfir nýja Fossvogsbrú, gegnum miðbæ Reykjavíkur og nýtt Vogahverfi að Krossamýrartorgi á Ártúnshöfða. Leiðin er alls um 14,5 km í sérrými og samhliða er gert ráð fyrir um 18 km af hjóla- og göngustígum. Verkefnið inniheldur einnig byggingu Fossvogsbrúar, þverun Sæbrautar á stokkloki, brýr yfir Elliðaár við Geirsnef og brú til hæðaraðlögunar á Ártúnshöfða. Stórar skiptistöðvar verða við Hamraborg, Landspítala og í Vogabyggð.

    Í deiliskipulagsferli48.600 m.kr.

  • Lota 2: Hamraborg → Lindir

    Í annarri lotu Borgarlínunnar verða lögð sérrými frá Lindum í Kópavogi til Hamraborgar eða um 3 km leið. Þar sem sérrými 2. lotu munu tengjast sérrýmum fyrstu lotu.

    7.400 m.kr.

  • Lota 3: Mjódd → BSÍ

    Í þriðju lotu Borgarlínunnar verður lagt sérrými frá BSÍ, meðfram Miklubraut að Vogastöð og áfram eftir Reykjanesbraut að Mjódd, um 6,3 km leið.

    Frumdrög17.100 m.kr.

  • Lota 4: Fjörður → Miklabraut

    Fjórða lota Borgarlínunnar mun liggja frá miðbæ Hafnarfjarðar, í gegnum Garðabæ og inn í Kópavog, um Smárann og Hamraborg að Suðurlandsbraut/ Laugavegi, samtals um 9,5 km leið sem í framhaldinu mun tengjast við fyrri lotur.

    Frumdrög19.800 m.kr.

  • Lota 5: Ártún → Spöng

    Fimmta lota Borgarlínunnar mun liggja frá Krossmýrartorgi á Ártúnshöfða og ferðast í gegnum Keldur að Spöng í Grafarvogi, samtals um 4,6 km leið.

    11.700 m.kr.

  • Lota 6: Ártún → Háholt

    Sjötta lota Borgarlínu felst í sérrými sem lagt verður frá Háholti í Mosfellsbæ sem síðan fer í gegnum Blikastaðaland og Keldnaholt uns það tengist öðrum lotum Borgarlínunnar á Krossmýrartorgi á Ártúnshöfða.

    Frumdrög16.300 m.kr.

Samfélagslegur ávinningur

Þversnið götu með Borgarlínu: gönguleiðir, akreinar, sérrými Borgarlínu, gróður og hjólaleiðir.

Fleiri valkostir fyrir ört vaxandi borg

Hágæða almenn­ings­sam­göngur eru nauðsynlegur hluti af fjölbreyttum ferðamáta framtíð­arinnar. Þær verða til bóta hvort sem valið er að ganga, hjóla, nota almenn­ings­sam­göngur eða einkabíl.

Samhliða uppbyggingu Borgar­línunnar verður ráðist í umfangs­miklar endurbætur á stofnvega­kerfinu og innviðir fyrir hjólreiðafólk og gangandi verða stórbættir, eins og kemur fram í Samgöngusátt­málanum. Sú uppbygging mun m.a. stytta ferðatíma hjólreiðafólks verulega og bæta þar að auki við nýjum möguleikum og svæðum til að njóta útivistar.

Nánar á vef Borgarlínu:

Stofnvegir42%
Borgarlína42%
Göngu- og hjólastígar13%
Umferðarstýring og öryggi3%

Hlutfall fjárfestingar

Við uppfærslu Samgöngusáttmálans árið 2024 er miðað við að 42% af fjármagni sáttmálans muni renna til fjárfestinga í innviðum Borgarlínunnar.