Fara beint í efni
Betri samgöngur

Kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks haldinn 1. júní

Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur boða til opins kynningarfundar vegna Sæbrautarstokks mánudaginn 1. júní næstkomandi klukkan 17:00 í Vogaskóla. Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmálanum og verður staðsettur á tæplega 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði Sæbrautarstokks verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð. Markmið stokksins er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.

Kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks haldinn 1. júní
Ásýndarmynd af Sæbrautarstokki.

Á fundinum mun Reykjavíkurborg ásamt ráðgjöfum frá Arkís arkitektum, Landslagi og Teiknistofunni Tröð kynna þær deiliskipulagstillögur sem nú eru í auglýsingu. Þá mun Vegagerðin ásamt ráðgjöfum frá Verkís verkfræðistofu kynna framkvæmd Sæbrautarstokks auk umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmdarinnar.

Dæmi um mögulegt yfirborð Sæbrautarstokks.

Hægt er að nálgast frekari gögn um málið í skipulagsgátt:

www.skipulagsgatt.is

Opið er fyrir athugasemdir til og með 24. júní næstkomandi.