Fara beint í efni
Betri samgöngur

Samgönguvika 2026  

Samgönguvika fer fram dagana 16.–22. september og að venju verður fjölbreytt dagskrá á höfuðborgarsvæðinu.

Samgönguvika 2026  

Betri samgöngur taka virkan þátt í vikunni og bjóða meðal annars til opins húss þar sem hægt verður að kynna sér Borgarlínuna og önnur verkefni Betri samgangna. Þá verður ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár formlega opnuð í Samgönguviku.

Markmið Samgönguviku er að vekja athygli á fjölbreyttum ferðamátum og þeim valkostum sem fólk hefur í daglegum ferðum.

Nýleg könnun Reykjavíkurborgar bendir til þess að mikill vilji sé til staðar til að breyta ferðavenjum. Um þriðjungur þeirra sem aka til vinnu segist vilja skipta yfir í aðra ferðamáta, sérstaklega almenningssamgöngur, hjólreiðar eða rafknúin létt farartæki.

Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að byggja upp samgöngukerfi þar sem fólk hefur raunhæft val um ferðamáta.

Með uppbyggingu Borgarlínu, eflingu almenningssamgangna og áframhaldandi uppbyggingu stofnhjólanets er unnið að því að gera fleiri ferðamáta að raunverulegum valkosti.

Opið hús í Hafnarstræti

Fimmtudaginn 18. september kl. 14- 16 verður opið hús hjá Betri samgöngum og Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins (ASHB) í húsakynnum þjónustumistöðvar Stætó í Hafnarstræti 7.

Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér starfsemi ASHB sem rekur Strætó og fræðast um framkvæmdir Betri samgangna eins og Borgarlínuna, uppbyggingu stofnahjólanets og aðra innviðauppbyggingu Samgöngusáttmálans sem fram undan er á höfuðborgarsvæðinu.

Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár opnuð

Mánudaginn 21. september kl. 9:30 verður ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár við Dimmu formlega opnuð. Brúin er hluti af uppbyggingu stofnhjólanets höfuðborgarsvæðisins og bætir tengingar og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Börn frá Árbæjarskóla taka þátt í opnuninni ásamt Sirkus Íslands.

Á upphafsdegi samgönguviku, miðvikudaginn 16. september verður Samgönguráðstefna ITS haldin og Orkuveitan býður til Auðlindahrings í Elliðaárdalnum þann 17. september.

Samgönguviku lýkur svo þriðjudaginn 22. september með Bíllausa deginum. Þá er fólk hvatt til að skilja einkabílinn eftir og nýta aðra ferðamáta. Frítt verður í strætó á höfuðborgarsvæðinu allan daginn. Þann sama dag mun Samgöngustofa standa fyrir Umferðaþingi þar sem athyglinni verður beint að unga fólkinu og umferðinni.

Nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu.