Fara beint í efni
Betri samgöngur

Tveggja daga lokun stígs við Arnarneslæk

Stígur við Arnarneslæk verður lokaður í tvo daga, mánudaginn 28. september og þriðjudaginn 29. september, vegna lokaframkvæmda við stígagerð á svæðinu.

Tveggja daga lokun stígs við Arnarneslæk

Lokunin hefst klukkan 9 á mánudagsmorgni og stendur til klukkan 18 á þriðjudag.

Gangandi og hjólandi vegfarendur eru beðnir um að fara um hjáleið, á meðan lokunin stendur yfir, sem liggur austan Hafnarfjarðarvegar:

  • Um mislæg gatnamót við Arnarneshæð
  • Eftir stígakerfi austan Hafnarfjarðarvegar
  • Um undirgöng sunnan við Vífilsstaðaveg

Framkvæmdir verða með eftirfarandi hætti:

• Mánudaginn 28. september: Malbik verður rifið upp og undirlag þjappað.

• Þriðjudaginn 29. september: Stígarnir verða malbikaðir.

Þegar malbikun lýkur verða nýir stígar sunnan Arnarneshæðar og við Sjávargrund tengdir saman og opnaðir fyrir umferð gangandi og hjólandi.
Undirbúningsvinna vegna framkvæmdanna hefst föstudaginn 25. september. Þá verður gert rof í malbikaðan stíg við enda Hegraness, efni þjappað og gengið frá svæðinu.
Áfram verður hægt að fara um stíginn yfir helgina og fram að lokun að morgni mánudagsins 28. september.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát í nágrenni framkvæmdasvæðisins og fylgja merkingum og leiðbeiningum um hjáleiðir.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum vegfarendum fyrir sýnda tillitssemi.

Lokun yfir Arnarneslæk