Fara beint í efni
Betri samgöngur

Yfirlit frétta

  • Opið hús um skipulag Keldnalands og gönguferð

    Framundan er mikilvæg uppbygging á Keldnalandi og markmiðið að þar rísi spennandi nútímahverfi sem byggir á vistvænum samgöngum. Skipulagsvinna er í fullum gangi og í næstu viku verða haldin opin hús vegna kynningar á vinnslutillögu rammahluta aðalskipulags Keldna og nágrennis. Kynningin verður í bókasafninu á Keldum, Keldnavegi 3, á eftirfarandi dögum:

  • Göngubrúin yfir Sæbraut komin í notkun

    Verkís hannaði mannvirkið og Ístak sá um framkvæmdir. VBV verkfræðistofa hafði eftirlit og umsjón á sinni könnu. Vegagerðin hefur haft yfirumsjón með verkinu fyrir hönd verkkaupa.

  • Rammasamningar gerðir fyrir Borgarlínu framkvæmdir

    Betri samgöngur hafa samþykkt fjögur tilboð sem bárust í rammasamning um uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínuna. Alls bárust átta tilboð en fjögur þeirra fullnægðu ekki hæfiskröfum útboðsins og komu því ekki til álita við samningsgerð.

  • Stígaframkvæmdir hafnar við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði

    Framkvæmdir eru hafnar við verkefnið Þrír stígar þar sem byggðir verða aðskildir göngu- og hjólastígar vestan við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og vestan Hafnarfjarðarvegar í Garðabæ og Kópavogi. Vinna við fyrsta hluta verksins hófst á dögunum en hann nær frá gatnamótum Hraunbrúnar og Reykjavíkurvegar í Hafnarfirði að sveitarfélagsmörkum við Garðabæ. Áætluð verklok stígagerðar í Hafnarfirði eru í september 2025.

  • Áfangi í skipulagi Keldnalands

    Skipulagsvinna á Keldnalandi í Reykjavík er í fullum gangi og áformað að því ferli ljúki í byrjun næsta árs. Reykjavíkurborg hefur samþykkt að opna kynningar og samráðsferli um vinnslutillögu á rammahluta aðalskipulags borgarinnar ásamt drögum að þróunaráætlun, hönnunarhandbók og samgönguskipulagi. Gögnin eru nú aðgengileg í skipulagsgáttinni.

  • Sæbraut í kílómetra langan stokk frá Miklubraut

    Mikilvæg tenging íbúa- og atvinnusvæða Sæbrautarstokkur er mikilvægur hluti af heildarsýn fyrir stofnvegakerfið og tengingu fyrirhugaðar Sundabrautar við það. Stokkurinn er ein af lykilforsendum fyrir þverun Borgarlínu, aukinni afkastagestu fólksflutninga austur og vestur um höfuðborgarsvæðið og tengingu nýrra uppbyggingarsvæða á Ártúnshöfða, Keldum og Blikastaðalandi við almenningssamgöngukerfið.

  • Göngu­brú á Sæbraut komin upp

    Ný göngu- og hjólabrú var hífð í heilu lagi á Sæbraut á mánudaginn og komið fyrir á stigahúsum sem reist hafa verið við Dugguvog og Snekkjuvog. Vonast er til að brúin verði tekin í notkun um miðjan júní. Hún mun standa þar til framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks hefjast og verður þá hægt að flytja á annan stað.

  • Smíði Fossvogsbrúar komin í útboð

    Betri samgöngur auglýsa eftir tilboðum í seinni hluta framkvæmda við Fossvogsbrú, sjálfa brúarsmíðina. Framkvæmdir við sjóvarnir og landfyllingar, fyrri hluta verksins, hófust í janúar á þessu ári og á báðum verkhlutum að vera lokið haustið 2028. Tilboð verða opnuð 30. september næstkomandi.

  • Borgarlínan verður fljótlegri, áreiðanlegri og umhverfisvænni

    Það kannast flest við Borgarlínuna, en það eru færri sem vita nákvæmlega um hvað hún snýst og að hvaða leyti hún verður frábrugðin Strætó. Kópavogspósturinn fékk Atla Björn Levy, forstöðumann verkefnastofu Borgarlínunnar hjá Betri samgöngum, til að svara nokkrum lykilspurningum um verkefnið.

  • Sífellt fleiri velja hjólið

    Þeim fjölgar jafnt og þétt sem nota hjólið sem ferðamáta, þetta sýna hjólateljarar víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Þegar fjöldi hjólandi vegfarenda er skoðaður síðastliðin þrjú ár sést að þau eru ansi mörg sem velja að hjóla og fjölgun hefur verið á milli ára, tæplega 1.900.000 manns hjóluðu árið 2022 en árið 2024 náði fjöldinn 2.100.000 manns. Nú stendur yfir átakið Hjólað í vinnuna og í aðsendri grein í Morgunblaðinu segir Katrín Halldórsdóttir, forstöðumaður hjóla- og göngustíga hjá Betri samgöngum að hjólareiðar séu raunhæfur valkostur sem daglegur ferðmáti á höfuðborgarsvæðinu.

  • Hjólað í vinnuna hófst í dag

    Átakið Hjólað í vinnuna hófst í morgun og stendur til 27.maí en þetta er í 23. sinn sem fólk er hvatt til að hvíla bílinn á leið til vinnu og taka fram hjólið sér til heilsubótar. Setningarhátíð var haldin í Ráðhúsinu í morgun og enn er hægt að skrá sig til þátttöku á hjoladivinnuna.is Nú…

  • Eyjólfur Árni Rafnsson nýr stjórnarformaður

    Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, var kjörinn nýr stjórnarformaður Betri samgangna á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn var í gær. Hann tekur við af Ragnhildi Hjaltadóttur, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í innviðaráðuneytinu sem sinnt hefur formennsku síðastliðið ár. Þá var Árni Freyr Stefánsson, skrifstofustjóri samgangna í innviðaráðuneytinu, kjörinn nýr inn í stjórnina en áfram sitja þau Guðrún Ögmundsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir, varaformaður stjórnar, Ásthildur Helgadóttir og Páll Björgvin Guðmundsson. Varamenn eru Guðmundur Axel Hansen og Hildigunnur Hafsteinsdóttir.

  • Rammasamningur um verkframkvæmdir Borgarlínunnar

    Betri samgöngur hafa auglýst eftir tilboðum í gerð rammasamnings um uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínuna. Helstu verkþættir eru gatnagerð, jarðvinna, veituframkvæmdir, blágrænar ofanvatnslausnir, gangstéttagerð, landmótum, uppsetning lýsingar og umferðarmerkja sem og aðrir nauðsynlegir þættir við gerð Borgarlínu.

  • Aðalfundur 2025

    Aðalfundur 2025

    Aðalfundur Betri samgangna ohf. árið 2025, vegna starfsársins 2024, verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025, kl. 15:00, í fundarsal A á Iceland Parliament Hotel, Thorvaldsensstræti 2, 101 Reykjavík.