Stofnvegir
Ráðist verður í 9 stór verkefni við stofnvegi á höfuðborgarsvæðinu sem öll hafa það að markmiði að auka flæði og hagkvæmni umferðar.
Mislæg gatnamót, stokkar og bættar tengingar milli sveitarfélaga stuðla að bættu umferðarflæði og munu minnka tafir í gatnakerfi svæðisins miðað við spár um aukinn fólksfjölda á höfuðborgarsvæðinu.
Framkvæmdum lokið
3 af 9
Áætluð verklok allra 9 framkvæmda er 2040.
Heildarfjárfesting
127.936 m.
42% af fjárfestingum Samgöngusáttmálans. Áætlað Q4 2024.
Verkefnin
Vesturlandsvegur: Skarhólabraut – Hafravatnsvegur
Breikkun úr 2+1 akreinum í 2+2 akreinar á um 1,1 km.
Lokið971 m.kr.
Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur – Krísuvíkurvegur
Aðskilnaður akstursstefna á 3,2 km með tveimur akreinum í hvora átt.
Lokið3.073 m.kr.
Suðurlandsvegur: Bæjarháls – Vesturlandsvegur
Breikkun í fjórar akreinar á um 1 km.
Lokið592 m.kr.
Arnarnesvegur – Breiðholtsbraut
Framlenging Arnarnesvegar að Breiðholtsbraut. Verkið felur einnig í sér tvöföldun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Elliðaá, hringtorg og tengingu við Vatnsendaveg.
Í framkvæmd8.000 m.kr.
Sæbrautarstokkur
Um 850 m langur vegstokkur fyrir 2+2 akreina stofnveg auk öryggissvæða og rampa upp á Kleppsmýrarveg og Skeiðarvog.
Í deiliskipulagsferli25.200 m.kr.
Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg
Mislæg gatnamót með frjálsu flæði umferðar af Reykjanesbraut á Bústaðaveg. Vinstri beygja af Bústaðavegi norður Reykjanesbraut verður aflögð.
Frumdrögum lokið2.500 m.kr.
Miklubrautargöng
Fyrirhugað er að setja Miklubraut í 2,8 km löng jarðgöng milli Snorrabrautar og austur fyrir Grensásveg. Til skoðunar var að setja Miklubraut í rúmlega 1,8 km langan stokk frá Snorrabraut að Kringlu eða jarðgöng milli Snorrabrautar og austur fyrir Grensásveg sem yrðu 2,8 km löng. Niðurstaðan er sú að jarðgöng eru hagkvæmari lausn en stokkur og taka þau áfram á forhönnunarstig.
Frumdrögum lokið54.700 m.kr.
Reykjanesbraut: Álftanesvegur – Lækjargata
Mislæg gatnamót Reykjanesbrautar við Lækjargötu, Fjarðahraun og Álftanesveg. Samanburður við möguleg jarðgöng frá Lækjargötu að Álftanesvegi greind til samanburðar sem möguleg lausn.
Frumdrög20.100 m.kr.
Garðabæjarstokkur
Hafnarfjarðarvegur settur í 450 m langan stokk frá Litlatúni vestur fyrir Lyngás og mislægar þveranir við Vífilstaðaveg og Lyngás.
Frumdrög12.800 m.kr.
Hlutfall fjárfestingar
Við uppfærslu Samgöngusáttmálans árið 2024 er miðað við að 42% af fjárfestingum hans muni renna til stofnvegaframkvæmda til ársins 2040.
Áhersla er lögð á aukið umferðaröryggi og að bæta flæði á umferðarþyngstu stofnvegum höfuðborgarsvæðisins.





