Fara beint í efni
Betri samgöngur

Yfirlit frétta

  • Jarðgöng undir Miklubraut betri kostur en stokkur

    Jarðgöng eru hagkvæmari lausn fyrir Miklubraut en stokkur og mælt er með því að taka þau áfram á forhönnunarstig. Þetta er niðurstaða svokallaðrar frumdragaskýrslu sem er fyrsta stig hönnunar. Skoðað var hvort væri betra að setja Miklubraut í rúmlega 1,8 km langan stokk frá Snorrabraut að Kringlunni eða gera jarðgöng frá Snorrabraut austur fyrir Grensás sem yrðu 2,8 km löng. Talið er að gerð ganganna tæki 4-5 ár og er áætlaður kostnaður 53,7 milljarðar kr. á verðlagi í nóvember 2023. Arðsemi jarðganga undir Miklubraut er áætluð tæp 9% og ábati yfir 40 ára tímabili er metinn um 48 milljarðar króna.

  • Fjölbreyttar framkvæmdir samhliða vinnu við Arnarnesveg

    Þá hefur einnig verið unnið við fyllingar undir Arnarnesveg í Elliðaárdal, klapparskeringar í vegstæði Arnarnesvegar og uppsteypu brúarstöpla brúar yfir Breiðholtsbraut sem og hljóðmanir við Arnarnesveg og Breiðholtsbraut. Veitur hafa nánast klárað lagningu Suðuræðar II ásamt tengingu við Suðuræð I sem er mikilvægur liður í að auka öryggi miðlunar á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu.

  • Þórey G. Guðmundsdóttir, Rakel Þorbergsdóttir og Atli Björn Levy.

    Liðsauki til framkvæmda

    Betri samgöngur fá liðstyrk í kjölfar uppfærslu á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og tilfærslu verkefna.

  • Nýr stígur í Suður­hlíð­um opnaður

    Nýr göngu- og hjólastígur um Suðurhlíðar í Reykjavíkur var formlega opnaður í dag að viðstöddum nemendum úr 6.bekk í Fossvogsskóla. Opnunin er hluti af samgönguviku sem nú stendur yfir. Með því að leggja áherslu á hjólreiðar sem raunhæfan samgöngumáta er stuðlað að bættri heilsu íbúa höfuðborgarsvæðisins, auk þess að létta á umferð bíla og draga úr mengun.

  • Uppfærður Samgöngusáttmáli undirritaður

    Betri samgöngur gerðu rammasamning við Vegagerðina árið 2021 þar sem Vegagerðinni var fyrir hönd fyrirtækisins falin umsjón með undirbúningi og framkvæmd verkefna Samgöngusáttmálans. Samningurinn var byggður á lögum um fyrirtækið og samþykktum þess. Í samningnum er kveðið á um að Betri samgöngur fari með yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu verkefna sáttmálans gagnvart Vegagerðinni, en að Vegagerðin annist undirbúning og verklegar framkvæmdir.

  • Skipulagsvinna í Keldnalandi í fullum gangi

    Einstakt tækifæri gefst til að efla byggð í austurhluta Reykjavíkur og styrkja sjálfbæra borgarþróun á höfuðborgarsvæðinu öllu með uppbyggingu í landi Keldna og á Keldnaholti. Eitt skref til viðbótar í átt að uppbyggingu á nýju og vel tengdu hverfi í Keldnalandi átti sér stað í borgarráði Reykjavíkur fyrir helgi þegar verklýsing aðalskipulagsbreytingar var afgreidd.

  • Góður gangur í fram­kvæmd­um við Arnar­nesveg

    Framkvæmdum við Arnarnesveg, milli Breiðholtsbrautar og Rjúpnavegar, miðar vel. Unnið er að nýrri aksturs- og göngubrú yfir Breiðholtsbraut, nýjum undirgöngum undir Breiðholtsbraut til móts við Völvufell, vegagerð og göngu- og hjólastígum í Elliðaárdal, auk fleiri verkefna.

  • Vörður á veginum fram­undan

    Það vill svo til að í sumar er komið að tímamótum í nokkrum af stóru fjárfestingum Samgöngusáttmálans. Frá gildistöku hans 2019 til áramóta hefur verið fjárfest í samgönguinnviðum fyrir alls 14,5 milljarða. Þar af eru 6,5 milljarðar í stofnvegum, 3,8 milljarðar í undirbúningi Borgarlínunnar, 2,7 milljarðar í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 1,6 milljarðar og öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum.

  • Ragnhildur Hjaltadóttir nýr stjórnarformaður

    Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrum ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu, er nýr stjórnarformaður Betri samgangna. Hún tekur við af Árna M. Mathiesen fyrrum fjármálaráðherra sem verið hefur stjórnarformaður frá stofnun fyrirtækisins 2020. Að öðru leyti er stjórn óbreytt en hana skipa auk Ragnhildar, Ólöf Örvarsdóttir varaformaður, Ásthildur Helgadóttir, Eyjólfur Árni Rafnsson, Guðrún Ögmundsdóttir og Páll Björgvin Guðmundsson. Þetta er meðal niðurstaðna aðalfundar Betri samgangan sem haldinn var í dag.

  • Aðalfundur 2024

    Aðalfundur 2024

    Aðalfundur Betri samgangna ohf. árið 2024, vegna starfsársins 2023, verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl 2024, kl. 16:30, í VOX Club á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

  • Framkvæmdir hafnar við nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu

    Framkvæmdir við nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu, sem er hluti Elliðaáa í Víðidal, hófust í febrúar. Nýja brúin verður mikil samgöngubót fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem eiga leið um þessa náttúruperlu. Samhliða brúarsmíðinni verða byggðir upp nýir og endurbættir göngu- og hjólastígar sem munu liggja að nýju stígakerfi við Grænugróf í Elliðaárdal og meðfram nýjum Arnarnesvegi. Áformað er að opna brúna á næsta ári.

  • Stígandi í stígaframkvæmdum

    Göngu- og hjólastíganet höfuðborgarsvæðisins stækkar um 3,3 kílómetra á árinu. Innifalið í því er brú við Grænugróf. Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, segir undirbúning ganga vel og er bjartsýn á að framkvæmdir hefjist með vorinu.

  • Kostnaðaráætlun Fossvogsbrúar

    Reykjavíkurborg, Kópavogsbær og Vegagerðin stóðu fyrir hönnunarsamkeppni á Fossvogsbrú árið 2021 þar sem staðsetningin er einstök. Mikill vilji var til þess að þar risi mannvirki sem fegri umhverfið um leið og það þjónar íbúum sem lykilsamgöngumannvirki. Vonir standa til þess að brúin verði áberandi kennileiti á höfuðborgarsvæðinu.

  • Við Öldu - brú yfir Fossvog

    Alda , brú yfir Fossvog , var til kynningar hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur borgar í gær, 31. janúar. Undirbúningur fyrir útboð e r langt á veg kominn en tvö útboð eru í undirbúningi, annars vegar fyrir fyllingar og hins vegar fyrir smíði brúarinnar. Alda er ætluð gangandi og hjólandi vegfarendum, ásamt því að vera lykillinn að leið Borgarlínunnar yfir Fossvog.

  • Er of vont veður á höfuðborgarsvæðinu fyrir almenningssamgöngur?

    Höfuðborgarsvæðið með sína tæplega 250 þúsund íbúa er það 12 fjölmennasta á Norðurlöndum. Það telst því meðal meðalstórra Norrænna borga. Allar borgir á Norðurlöndum eru markvisst að reyna að minnka hlutdeild bílferða í daglegum ferðum íbúa til að bæta umferðarflæði og draga úr útblæstri.