Fara beint í efni
Betri samgöngur

Staða framkvæmda á stofnhjólaneti höfuðborgarsvæðisins

Framkvæmdir við stofnhjólanet höfuðborgarsvæðisins hafa verið í fullum gangi í sumar. Nokkrum framkvæmdum er nú lokið, aðrar komnar á lokametra, auk þess sem tvær nýjar framkvæmdir hófust í síðustu viku.

Staða framkvæmda á stofnhjólaneti höfuðborgarsvæðisins

Í sumar lauk framkvæmdum við nýjan hjólastíg meðfram Fjarðarhrauni, frá gatnamótum við Hafnarfjarðarveg að Flatahrauni. Stígurinn sem er nú kominn í notkun liggur að mestu samsíða Bæjarhrauni og Fjarðarkaupum.

Nýlega lauk gerð aðskildra göngu- og hjólastíga norðan undirganganna við Arnarneshæð og framkvæmdir við samskonar stíga sunnan undirganganna eru nú á lokametrunum.

Nýir stígar sunnan við Arnarneshæð.

Einnig eru stígar sem liggja sunnan Hegraness að Sjávargrund langt komnir. Hluti framkvæmdanna felst í nýrri brú fyrir hjólandi vegfarendur yfir Arnarneslæk. Brúin hefur þegar verið sett upp og á næstu vikum verður unnið að lokafrágangi stíga sem tengja hana annars vegar við nýju stígana um Arnarneshæð og hins vegar við stígana að Sjávargrund.

Nýir stígar við Sjávargrund.

Framkvæmdir við stíga í Ásahverfi í Garðabæ, vestan Hafnarfjarðarvegar, hafa einnig gengið vel og eru nú á lokametrunum.

Í síðustu viku hófust þá tvær nýjar framkvæmdir á stofnhjólaneti höfuðborgarsvæðisins. Önnur framkvæmdin er við Voginn í Kópavogi, vestan Hafnarfjarðarvegar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir muni klárast vorið 2027.
Hin framkvæmdin er við Hamraborg og Hábraut og nær að Ásbraut. Áætlað er að þeim framkvæmdum ljúki í desember 2026. Stefnt er að því að halda áfram uppbyggingu aðskilins stígakerfis um Ásbraut vorið 2027.

Framkvæmdir við Ásahverfi.

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagátt: Verksjá.is