Fara beint í efni
Betri samgöngur

Yfirlit frétta

  • Samningur við VSÓ Ráðgjöf um Borgarlínuhönnun

    Verkefnið í tölum: • Áætlaður fjöldi vinnustunda við hönnunina er 9.400 klst. en samningurinn hljóðar upp á um 240 milljónir króna. • Heildarlengd hönnunarverkefnisins er um 3,7 km. • Fjöldi núverandi gatnamóta innan svæðisins eru 17, þar af eru 8 ljósastýrð. • Hönnunarsvæðinu er skipt í 4 leggi, fjórir verkhlutar verða hannaðir í verkhönnun og þar af einn sömuleiðis í forhönnun. Samstarf og næstu skref Hönnunin verður unnin í nánu samráði við Vegagerðina, Reykjavíkurborg og aðra hagsmunaaðila, með áherslu á að skapa öruggt umhverfi með auknum lífsgæðum, skilvirkt og sjálfbært almenningssamgöngukerfi.

  • Verkefni Samgöngusáttmálans rædd á Seltjarnarnesi

    Í uppfærðum Samgöngusáttmála var ákveðið að auka verulega uppbyggingu hjóla- og göngustíga og hún er nú 13% af öllum fjárfestingum sáttmálans eða um 40 milljarðar króna. Lagðir verða 80 km af stígum til viðbótar við þá 20 km sem þegar er búið að gera. Undirgöng og brýr fyrir hjólandi og gangandi umferð eru hluti af þessum verkefnum. Fram kom í máli Katrínar Halldórsdóttur, forstöðumanns göngu- og hjólastíga hjá Betri samgöngum, að mikil fjölgun hefur orðið í hópi þeirra sem hjóla til vinnu og í skóla allt árið um kring. Samkvæmt teljara á Eiðsgranda sem eingöngu telur reiðhjól, ekki rafskútur eða gangandi, mældust um 3800 ferðir í janúar 2025 en á sumrin hefur fjöldi ferða farið í allt að 19 þúsund í einum mánuði.

  • „Oft skapast pólítískur hvati til yfirvegaðs vanmats á kostnaði framkvæmda“

    Norðmenn hafa náð eftirtektarverðum árangri í að minnka framúrkeyrslu kostnaðar- og tímaáætlana opinberra framkvæmda og á ráðstefnu Verkfræðingafélags Íslands í dag kynnti sérfræðingur norska fjármálaráðuneytisins hvernig það tókst. Mikilvægi vandaðrar verkefnastjórnsýslu við risaframkvæmdir hins opinbera var rædd þar undir yfirskriftinni „Risaverkefni – Stærð skiptir máli“. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, sagði að breyta þurfi hugarfari og…

  • Áhrifum framkvæmda við Fossvogsbrú á starfsemi Reykjavíkurflugvallar haldið í lágmarki

    Vegna nálægðar framkvæmdasvæðis við landfyllingar og smíði Fossvogsbrúar við Reykjavíkurflugvöll, þá sérstaklega flugbraut 01/19, hafa samskipti og samráð Isavia Innanlandsflugvalla ehf. og Verkefnastofu Borgarlínu staðið yfir í nokkur ár. Samstarfið hefur falið í sér reglulega fundi þar sem farið var yfir öryggissvæði flugvallarins, færslur lóðamarka og flugvallargirðinga sem og vinnu nærri hindrunarflötum í aðflugs- og…

  • Framkvæmdir hafnar fyrir Fossvogsbrú

    Framkvæmdir vegna Fossvogsbrúar, sem er fyrsta stóra verkefnið í tengslum við Borgarlínuna, hófust formlega í dag. Nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, tók fyrstu skóflustunguna að framkvæmdinni, ásamt Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna, Einari Þorsteinssyni, borgarstjóra Reykjavíkur og Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, á Kársnesi í Kópavogi.

  • Framkvæmdir hefjast vegna Fossvogsbrúar á næstu dögum

    Verksamningur vegna landfyllinga og sjóvarna tengdum byggingu brúar yfir Fossvog var undirritaður í dag. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Guðgeir Freyr Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Gröfu og grjóts, skrifuðu undir samninginn í húsakynnum Vegagerðarinnar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á næstu dögum en áætluð verklok eru 1. nóvember 2026. Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum en Vegagerðin verkstýrir því fyrir hönd Betri samgangna sem bera ábyrgð á öllum framkvæmdum sáttmálans. Um tímamótasamning er að ræða því verkið markar upphaf framkvæmda vegna byggingar Fossvogsbrúar, sem er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu. Brúin verður ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsaksturs lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Hún mun tengja saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur með afgerandi hætti.

  • „Keldnaland býður upp á ný tækifæri“

    Áform um uppbyggingu að Keldum og Keldnaholti eru hluti af Samgöngusáttmálanum. Keldnaland er 117 hektara landsvæði í Reykjavík sem lengi hefur staðið til að nýta til uppbyggingar en vinningstillögur í samkeppni Reykjavíkurborgar og Betri samgangna um skipulag þess voru kynntar í haust. Kristín Kalmansdóttir framkvæmdastjóri Keldna, Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði, segir að nýtt blandað íbúða-…

  • Fjögur tilboð í landfyllingar Fossvogsbrúar

    Vegagerðin hefur opnað tilboð sem bárust í landfyllingar og sjóvarnir vegna nýbyggingar brúar yfir Fossvog. Verkið er hluti af 1. lotu Borgarlínunnar og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist snemma á nýju ári en verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.

  • Skipulag og umhverfismat fyrir 1. lotu Borgarlínu til kynningar

    Reykjavíkurborg og Kópavogur hafa samþykkt að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínunnar sem er á milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi. Þá hefur Vegagerðin samhliða lagt fram til kynningar umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmda við þessa fyrstu lotu.