Fara beint í efni
Betri samgöngur

Yfirlit frétta

  • Fyrsta útboðið fyrir Sæbrautarstokk

    Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut. Sæbrautarstokkur, sem er eitt af verkefnum Samgöngusáttmálans, verður mikilvæg samgöngubót á höfuðborgarsvæðinu. Tryggir frjálst flæði bílaumferðar á löngum kafla og eykur umferðaröryggi fyrir gangandi og hjólandi á svæðinu. Frestur til að skila inn tilboðum er til kl.14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026. Útboðsgögn eru aðgengileg og eru afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign.

  • Gamla göngubrúin við Dimmu rifin

    Vinna við niðurrif á gömlu göngubrúnni yfir Elliðaár við Dimmu hófst í vikunni og hefur brúin nú lokið hlutverki sínu eftir áralanga þjónustu við gangandi og hjólandi vegfarendur. Ný og glæsileg brú hafði þegar verið tekin í notkun en hún er staðsett um 100 metrum fyrir neðan þá gömlu. Áætlað er að vinnunni ljúki fyrir páska og á meðan þarf að loka aðliggjandi stígum.

  • Vinna við Arnarnesveg í fullum gangi

    Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík, miðar vel áfram. Framkvæmdin er umfangsmikil og er brúarsmíði yfir Breiðholtsbraut hluti af henni, fjölgun akreina frá Jaðarseli að Elliðaá, göngu- og hjólabrýr og stígar. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári. Arnarnesvegur – Breiðholtsbraut er fjórða stofnvegaframkvæmdin af níu á höfuðborgarsvæðinu sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Arnarnesvegur tengir saman tvö fjölmennustu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og mun bæta umferðaröryggi og flæði á svæðinu. Þá verður nýr Arnarnesvegur mikilvægur fyrir þjónustu neyðaraðila í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins.

  • Kvartanir eða eftirsjá sjaldgæf þegar samgönguinnviðir eru tilbúnir

    Danska ráðgjafafyrirtækið COWI hefur unnið að mörgum samgönguverkefnum og hér á landi er Borgarlínan eitt þeirra. Jens Højgaard Christoffersen, forstjóri COWI, segir í viðtali við Morgunblaðið að eftir að almenningssamgöngukerfi eins og Borgarlínan eru tilbúin og komin í notkun upplifi hann sjaldan miklar kvartanir eða eftirsjá á meðal almennnings. Jafnvel þótt slík verkefni séu iðulega mikið rædd og gagnrýnd á undirbúnings- og byggingartíma. Þetta hafi átt við um stór verkefni eins og Eyrarsundsbrúna milli Danmerkur og Svíþjóðar. Margir hafi sagst aldrei ætla að aka yfir hana og halda í staðinn áfram að taka ferjuna á milli. En eftir að brúin var vígð gleymdist það allt.

  • Ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins

    Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf. frá janúar 2021. Þar hefur Davíð leitt uppbyggingu Borgarlínunnar og annarra verkefna sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Í fréttatilkynningu segir að Davíð hafi verið valinn úr hópi 23 umsækjenda og muni hefja störf á næstu dögum. Almenningssamgöngur…

  • Borgarlínan við HR og Nauthólsveg

    Áætlað er að framkvæmdir vegna Borgarlínu hefjist við Nauthólsveg og HR í vor og er verkhönnun á lokastigi. Breytingar voru gerðar á deiliskipulagi HR og nýtt deiliskipulag gert fyrir Borgarlínu um Nauthólsveg. Margvíslegt samráð hefur verið haft við hagaðila og hefur HR, stærsti vinnustaðurinn á svæðinu, fagnað tilkomu Borgarlínu og talið aukningu á umferð hjólandi falla vel að stefnu sinni.

  • Fimm fyrirtæki áhugasöm um að útvega Borgarlínutré

    Markmið Borgarlínu er ekki eingöngu að koma á afkastamiklu kerfi almenningssamgangna með hærra þjónustustigi heldur er hluti af forsendum verkefnisins að bæta ásýnd göturýma. Lögð er áhersla á grænt yfirbragð þeirra með því að hafa trjágróður í göturýminu sjálfu. Betri samgöngur gerðu markaðskönnun til að undirbúa innkaup á trjám fyrir 1. lotu Borgarlínu og bárust…

  • Borgarlínan unnin í bútum til að lágmarka rask

    Framkvæmdir við Borgarlínuna hófust eins og kunnugt er í upphafi árs með gerð landfyllinga fyrir fyrirhugaða Fossvogsbrú. Næsta vor og sumar er áætlað að framkvæmdir hefjist jafnframt við fjóra leggi Borgarlínunnar annars staðar í borginni. Borgarlínan er stórt langtímaverkefni og til að koma í veg fyrir of mikið rask á samgöngum verður verkefnið bútað niður þannig að ekki verður farið í langa kafla í einu en framkvæmdatíminn er áætlaður til ársins 2031. Þetta kemur fram í umfjöllun um Borgarlínuna sem lesa má hér fyrir neðan og birtist í nýjasta tölublaði Sóknarfæra.

  • Verksamningur undirritaður um smíði Fossvogsbrúar

    Betri samgöngur annars vegar og Ístak hf. & Per Aarsleff AS hins vegar skrifuðu í dag undir verksamning um smíði Fossvogsbrúar. Fyrirtækin áttu lægra af tveimur tilboðum í verkið og hljóðar samningurinn upp á um 7.661 m.kr. Samningurinn var undirritaður rafrænt í Fossvogi þar framkvæmdir standa nú yfir við gerð landfyllinga fyrir brúna, af Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna og Karli Andreassen, forstjóra Ístaks.

  • Breiðholtsbraut lokuð um helgina vegna steypuvinnu

    Hluta Breiðholtsbrautar, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs, verður lokað fyrir allri umferð um helgina á meðan steypuvinna Vegagerðarinnar fer fram við nýja brú yfir Breiðholtsbraut. Þetta er gert til að að tryggja öryggi vegfarenda og starfsmanna. Lokunin verður frá klukkan 1 aðfaranótt laugardagsins 8. nóvember til klukkan 5 aðfaranótt mánudagsins 10. nóvember. Opið verður fyrir neyðarakstur. Að steypuvinnu lokinni þarf hugsanlega að takmarka umferð um Breiðholtsbraut. Nánari tímasetningar verða tilkynntar síðar, en umferð verður stjórnað af starfsmönnum verktaka. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið hefur verið lækkaður í 30 km/klst. á meðan unnið er við brúna. Mikil slysahætta getur skapast þegar ekið er með of háan farm undir vegbrúna, sem nú er í smíðum yfir Breiðholtsbraut. Þar eru m.a. stálbitar sem hver um sig vegur á annað tonn og ef ökutæki rekst í þá er voðinn vís. Vegagerðin birti í síðustu viku myndband af flutningabíl sem var ekið á hæðarvarnarbúnað við brúna.

  • Mannvirkin farin að taka á sig mynd

    Framkvæmdir við nýjan Arnarnesveg eru í fullum gangi og mannvirkin við Breiðholtsbraut og í Elliðaárdal, sem eru hluti af því verki, eru farin að taka á sig endanlega mynd. Vinna er langt komin við uppsetningu undirsláttar og járnbendingu fyrir brúardekk brúar yfir Breiðholtsbraut. Þá er brúin yfir Dimmu nánast tilbúin. Arnarnesvegur er eitt af stofnvegaverkefnum Samgöngusáttmálans og er umsjón þess í höndum Vegagerðarinnar.

  • Opnun tilboða í smíði Fossvogsbrúar

    Tilboð í smíði Fossvogsbrúar voru opnuð síðdegis í gær og bárust tvö tilboð í verkið. Betri samgöngur buðu brúarsmíðina út á Evrópska efnahagssvæðinu í maí síðastliðnum en fyrri hluti framkvæmda, gerð sjóvarna og landfyllinga á Kársnesi í Kópavogi og í Reykjavík, hefur staðið yfir síðan í janúar 2025. Áætlaður kostnaður við brúarsmíðina var tæpir sex milljaðar króna. Tilboðin eru eftirfarandi:

  • Sex ára sáttmáli

    Sex ára sáttmáli

    „Það getur verið erfitt að hugsa 15 ár fram í tímann þegar maður situr fastur í umferðinni. Það tekur tíma að finna lausnir sem breið sátt er um, fjármagna þær, fara með þær í gegnum hönnunar- og skipulagsferli og hrinda í framkvæmd,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, í grein sem hann skrifar í tilefni…

  • Keldnaland – áframhaldandi þróun vinnslutillögu

    Í áratugi hafa verið áform um frekari uppbyggingu á Keldnalandi, um 115 hektara landsvæði að Keldum og Keldnaholti, eign sem ríkið lagði til sem hluta fjármögnunar samgöngusáttmála ríkis og sex sveitarfélaga. Ábati af sölu byggingarréttar á Keldnalandi rennur til umfangsmikilla fjárfestinga Betri samgangna á höfuðborgarsvæðinu í stofnvegakerfinu, innviða Borgarlínu og hjóla- og göngustíga auk smærri verkefna.

  • Viðburðarík samgönguvika framundan

    Samgöngur fyrir öll er þema Evrópsku samgönguvikunnar sem hefst á morgun 16. september en frá árinu 2002 hafa sveitarfélög á Íslandi hafa tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfsbærar samgöngur. Fjölmargir viðburðir verða haldnir, þar á meðal spennandi málþing í Ráðhúsinu í Reykjavík á fimmtudag, Auðlindahringur verður hjólaður frá Elliðaárstöð og svokallað Aðgengisstroll haldið á Akureyri.

  • Niðurstöður umhverfismatsskýrslu til kynningar

    Umhverfisáhrif fyrirhugaðra framkvæmda við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar, ásamt hluta af 3. lotu Borgarlínu milli Vogabyggðar og Stekkjarbakka, voru rædd á opnum kynningarfundi fyrr í vikunni. Með breytingum á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar verður ljósastýring við gatnamótin afnumin og leið Borgarlínu komið fyrir í sérrými. Umhverfismatsskýrslan er nú til kynningar hjá Skipulagsstofnun. Nokkrir valkostir…