Umferðaröryggi bætt við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar
Framkvæmdir eru að hefjast við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar til að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Að sögn Vegagerðarinnar, sem hefur umsjón með verkinu, er áætlað er áætlað að því ljúki um mánaðamótin september-október. Nánar um framkvæmdina:

- Settar verða nýjar, upphækkaðar gönguþveranir á fjórum stöðum við gatnamótin, þar sem umferð er hleypt til hægri af aðalbraut, eða við svokölluð hægribeygju-framhjáhlaup.
- Lýsing verður bætt en settir verða upp ljósastaurar og götulampar vegna gangbrautarlýsingar.
- Endurbætur verða gerðar á miðeyjum og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
- Einnig á að koma fyrir nýjum niðurföllum.
- Fara þarf í jarðvinnu og yfirborðsfrágang í lok framkvæmda
Tímabundnar breytingar á umferðarskipulagi
Framkvæmdum verður skipt í fjóra áfanga og loka þarf einu framhjáhlaupi í einu meðan á vinnu stendur. Því má búast við tímabundnum breytingum á umferðarskipulagi á svæðinu.
Öryggi vegfarenda
Ökumönnum er bent á að fylgjast vel með merkingum á svæðinu og virða tímabundnar umferðarráðstafanir Sérstaklega verður hugað að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og verða göngu- og hjólaleiðir merktar sérstaklega meðan á framkvæmdum stendur.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar.
Sambærilegar öryggisaðgerðir voru gerðar við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar árið 2024.


Um er að ræða samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar, en það heyrir undir Samgöngusáttmálann.


Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar.




