Fara beint í efni
Betri samgöngur

Lota 1: Ártúnshöfði → Hlemmur → Hamraborg

Fyrsta lota Borgarlínunnar liggur frá Hamraborg í Kópavogi, yfir nýja Fossvogsbrú, gegnum miðbæ Reykjavíkur og nýtt Vogahverfi að Krossamýrartorgi á Ártúnshöfða. Leiðin er alls um 14,5 km í sérrými og samhliða er gert ráð fyrir um 18 km af hjóla- og göngustígum. Verkefnið inniheldur einnig byggingu Fossvogsbrúar, þverun Sæbrautar á stokkloki, brýr yfir Elliðaár við Geirsnef og brú til hæðaraðlögunar á Ártúnshöfða. Stórar skiptistöðvar verða við Hamraborg, Landspítala og í Vogabyggð.

Staða mars 2026. Áætluð lok 2031.

  1. FrumdrögLokið
  2. Hönnun50% lokið
  3. Deiliskipulag50% lokið
  4. FramkvæmdEkki hafið
Tölvugerð mynd af Borgarlínuvagni við yfirbyggða biðstöð, séð ofan frá
Stöðvar Borgarlínu verða yfirbyggðar, aðlaðandi og þægilegar með þrepalausu aðgengi inn í vagnana.

Staða framkvæmda

  • Frumdrög: 2019–2020
  • Hönnun: 2020–2028
  • Framkvæmd: 2024–2031
  • Áætlaður kostnaður: 48,6 ma.kr. (Q4 2024)