Vinna við Arnarnesveg í fullum gangi
Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík, miðar vel áfram. Framkvæmdin er umfangsmikil og er brúarsmíði yfir Breiðholtsbraut hluti af henni, fjölgun akreina frá Jaðarseli að Elliðaá, göngu- og hjólabrýr og stígar. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári. Arnarnesvegur – Breiðholtsbraut er fjórða stofnvegaframkvæmdin af níu á höfuðborgarsvæðinu sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Arnarnesvegur tengir saman tvö fjölmennustu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og mun bæta umferðaröryggi og flæði á svæðinu. Þá verður nýr Arnarnesvegur mikilvægur fyrir þjónustu neyðaraðila í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins.






**
Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagátt:**
Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson





