Fara beint í efni
Betri samgöngur

Verksamningur undirritaður um Arnarnesveg

Verksamningur hefur verið undirritaður við Loftorku og Suðurverk vegna þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Um er að ræða nýbygginu vegar á um 1,9 km kafla, auk þess sem byggð verða brúarmannvirki og undirgöng. Undirbúningur hefst strax í þessari viku og búist er við að framkvæmdir hefjist um miðjan ágúst.

Verksamningur undirritaður um Arnarnesveg

Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg. Í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15 þúsund manns. Vegkaflinn mun bæta til muna viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur.

Verkið er samstarfsverkefni Betri samgangna ohf., Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Veitna og Mílu og er að mestu fjármagnað af Samgöngusáttmálanum.