Fara beint í efni
Betri samgöngur

Framkvæmdir hefjast vegna Fossvogsbrúar á næstu dögum

Verksamningur vegna landfyllinga og sjóvarna tengdum byggingu brúar yfir Fossvog var undirritaður í dag. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Guðgeir Freyr Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Gröfu og grjóts, skrifuðu undir samninginn í húsakynnum Vegagerðarinnar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á næstu dögum en áætluð verklok eru 1. nóvember 2026. Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum en Vegagerðin verkstýrir því fyrir hönd Betri samgangna sem bera ábyrgð á öllum framkvæmdum sáttmálans. Um tímamótasamning er að ræða því verkið markar upphaf framkvæmda vegna byggingar Fossvogsbrúar, sem er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu. Brúin verður ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsaksturs lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Hún mun tengja saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur með afgerandi hætti.

Framkvæmdir hefjast vegna Fossvogsbrúar á næstu dögum

Tilkoma brúarinnar verður bylting fyrir þau sem kjósa vistvæna samgöngumáta á svæðinu, auk þess að stytta vegalengdir og stuðla að því að draga úr umferðarálagi á vegum. Áætlanir gera ráð fyrir að 10 þúsund manns muni ferðast daglega um Fossvogsbrú.

Verkið var boðið út 6. nóvember á síðasta ári á Evrópska efnahagssvæðinu og bárust fjögur tilboð, þar af þrjú undir áætluðum verktakakostnaði. Grafa og grjót, sem sérhæfir sig á sviði jarðvinnu, lagði fram lægsta tilboðið sem var um 70% af áætluðum verktakakostnaði.

**
Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í nýrri upplýsingagátt:**

Verksjá.is