Góður Öldu-gangur í Fossvogi
Alda , brú yfir Fossvog , var til kynningar hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur borgar í gær, 31. janúar. Undirbúningur fyrir útboð e r langt á veg kominn en tvö útboð eru í undirbúningi, annars vegar fyrir fyllingar og hins vegar fyrir smíði brúarinnar. Alda er ætluð gangandi og hjólandi vegfarendum, ásamt því að vera lykillinn að leið Borgarlínunnar yfir Fossvog.

Útboð í vor og sumar
Áætlað er að fyrsta útboð af tveimur fari fram með vorinu en þá verða fyllingar boðnar út. Fyllingar í Skerjafirði verða hluti af því útboði.
Útboð á smíði brúarinnar og landmótun er síðan fyrirhugað um mitt sumar. Í síðari útboðinu er meðal annars gert ráð fyrir 900 tonnum af stáli í yfirbyggingu brúarinnar, sem verður í fimm höfum með steyptu brúargólfi. Gert er ráð fyrir að stórar forsmíðaðar einingar verði notaðar í stöpla og yfirbyggingu. Brúin verður 270 m að lengd.
Taka þarf sérstakt tillit til starfsemi Reykjavíkurflugvallar í báðum útboðum og þau áhrif sem flugumferð hefur á framkvæmdir við fyllingar og byggingu brúarinnar.
Vinna við landfyllingar hefst á Kársnesi
Áætlað er að vinna við landfyllingar hefjist í sumar og að byrjað verði á Kársnesi. Í byrjun næsta árs er svo áætlað að hefja vinnu við brúargerð og landfyllingar Reykjavíkurmegin. Fyrirhugað er að hefja vinnu við landfyllingar í Skerjafirði árið 2026 og samhliða verður unnið við brúargerð. Verklok eru áætluð á árinu 2027.

Breytir útivistarmöguleikum
Auk þess að vera mikilvæg samgöngutenging breytir brúin útivistarmöguleikum á svæðinu því göngustígurinn austan á brúnni bindur saman fimm kílómetra göngu- og hlaupaleið um Fossvoginn. Þaðan er fallegt útsýni yfir fjölbreytt útivistarsvæði og strandlengju Fossvogs. Af áningarstöðum við göngustíginn á brúnni er einnig ágætt útsýni til vesturs út Skerjafjörð.
Hluti af Samgöngusáttmála
Hönnun Öldu hefur verið frá árinu 2022 unnin af verkfræðistofunni EFLU fyrir Borgarlínuna í samstarfi við Verkefnastofu Borgarlínunnar, Vegagerðina, Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ. Fossvogsbrú er hluti af verkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem gerður var milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu árið 2019.
Áætlaður kostnaður við brúna eru 6,7 milljarðar króna. Áætlaður kostnaður við landmótun og yfirborðsfrágang er 2,1 milljarðar króna. Í þeim kostnaði eru 500 milljónir vegna landfyllinga í Skerjafirði en sú framkvæmd og kostnaður heyrir undir Reykjavíkjurborg.
Með Borgarlínunni verður til nýtt almenningssamgöngukerfi sem bindur sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu betur saman, með betri lífsgæðum og einfaldara lífi fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Með henni eru innviðir styrktir og tekin nauðsynleg skref í loftslagsmálum og í átt að betri lýðheilsu.








