Fara beint í efni
Betri samgöngur

Yfirlit frétta

  • Lægsta boð 720 milljónum undir áætlun

    Tilboð voru opnuð í framkvæmdir við Arnarnesveg í gær. Lægsta boð hljóðaði upp á um 5,4 milljarða og var því um 720 milljónum lægra en áætlun gerði ráð fyrir sem var 6,2 milljarðar. Verkið felst í gerð lokaáfanga Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi.

  • 36 tillögur bárust um Keldnaland

    Þrjátíu og sex tillögur bárust í alþjóðlega þróunarsamkeppni um Keldnaland áður en skilafrestur rann út 19. apríl. Dómnefnd metur nú tillögurnar og velur allt að fimm sem verða þróaðar áfram á öðru þrepi. Betri samgöngur og Reykjavíkurborg standa saman að samkeppninni.

  • Ásthildur og Páll ný í stjórn Betri samgangna

    Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs, og Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), voru kjörin í stjórn Betri samgangna ohf. á aðalfundi sem fram fór á miðvikudaginn. Fyrir eru í stjórn Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra sem verður áfram stjórnarformaður, Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur sem verður varastjórnarformaður, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Guðrún Ögmundsdóttir, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Úr stjórn fara Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ og formaður SSH, og Hildigunnur Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri SSH.

  • Aðalfundur 2023

    Aðalfundur 2023

    Aðalfundur Betri samgangna ohf. árið 2023, vegna starfsársins 2022, verður haldinn miðvikudaginn 19. apríl 2023, kl. 16:00, á Vox Club á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

  • Fundur um gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar

    Kynningarfundur um gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar, og útfærslu á Borgarlínunni milli Vogabyggðar og Stekkjarbakka, verður haldinn 29. mars kl. 17:00 í Borgartúni 14, 7. hæð. Framkvæmdirnar eru hluti af Samgöngusáttmálanum og tilgangur þeirra er að efla samgöngur allra ferðamáta, minnka umferðartafir á háannatíma og auka umferðaröryggi.

  • Arnarnesvegur boðinn út

    Þriðji áfangi Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar hefur verið boðinn út. Tilboð verða opnuð 18. apríl. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist sumarið 2023 og áætlað er að verkinu ljúki haustið 2026. Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi vegfarenda og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg. Í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15.000 manns. Þá mun vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til muna.

  • Uppfærsla Samgöngusáttmálans hafin

    Ríkið sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðisins hafa ákveðið að hefja undirbúning að því að uppfæra Samgöngusáttmálann og gera viðauka við hann. Betri samgöngum hefur verið falið að uppfæra framkvæmdatöflu sáttmálans, þ.m.t. tíma- og kostnaðaráætlanir. Einnig að meta áhrif stofnvega- og Borgarlínuinnviða m.t.t. markmiða um greiðar samgöngur, fjölbreytta ferðamáta, kolefnishlutlaust samfélag og umferðaröryggi. Á þeim grunni verði sett mælanleg undirmarkmið og árangursvísar. Þá hefur Betri samgöngum verið falið að móta leiðir að bæta stjórnskipulag verkefnisins og einstakra verkefna.

  • Sátt­máli slítur barns­skónum

    Í ár eru fjögur ár síðan ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gerðu sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 15 ára. Það var mikilvægt skref fyrir þessa aðila til að setja fram sameiginlega langtímasýn og fjármagna nauðsynlega fjárfestingu í samgönguinnviðum. Slíkt fyrirkomulag hefur verið við haft í Noregi og Svíþjóð um langa hríð við góðan árangur.

  • Samkeppni um þróun Keldnalands hafin

    Reykjavíkurborg og Betri samgöngur efna til alþjóðlegrar samkeppni um þróun Keldnalands sem hefst í dag. Tilgangur samkeppninnar er að leita eftir vönduðum tillögum og þverfaglegu teymi til að koma að þeirri vinnu sem framundan er við gerð þróunaráætlunar svæðisins. Keldnaland er 116 hektara landssvæði og er markmiðið að þar rísi spennandi nútímahverfi, sem byggir á vistvænum samgöngum og stuðlar að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi.

  • Ný leið við þróun byggðar í Keldnalandi

    Búið er að skipa dómnefnd í opinni alþjóðlegri samkeppni um þróun Keldnalands, sem Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf. standa í sameiningu að. Í dómnefndinni eru meðal annars Brent Toderian og Maria Vassilakou en þau hafa sett sitt mark á Vancouver og Vínarborg, sem eru iðulega tilnefndar í hópi lífvænlegustu borga í heimi. Samkeppnin er ein sú stærsta sem ráðist hefur verið í hér á landi en með henni er verið að fara nýjar leiðir við að þróa byggð í borginni.

  • Borgarlínan mun hafa margvísleg jákvæð áhrif

    Aukin notkun á almenningssamgöngum og virkum ferðamáta, sem gera má ráð fyrir með tilkomu Borgarlínunnar, hefur jákvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu og fækkar ótímabærum dauðsföllum. Þá er líklegt að Borgarlínan bæti aðgengi að ýmsum áfangastöðum og þjónustu og auki félagslega samheldni og jöfnuð. Góðar og aðgengilegar almenningssamgöngur geta komið í veg fyrir einangrun og útilokun ákveðinna hópa og með Borgarlínunni gefst því tækifæri til að auka inngildingu (e. inclusion). Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju lýðheilsumati á fyrstu lotu Borgarlínunnar í Reykjavík.

  • Kaupsamningur undirritaður fyrir Keldnaland

    Ríkissjóður og Betri samgöngur ohf. hafa gengið frá samningi sín á milli um að félagið taki við landsvæðinu við Keldur og Keldnaholt ásamt þeim réttindum og skyldum sem því tengjast. Landið er alls um 116 hektarar eða að svipaðri stærð og miðborg Reykjavíkur að flatarmáli.

  • Þriðja stofnvegaverkefninu lokið

    Vígðir voru tveir áfangar af nýjum og endurbættum Vesturlandsvegi í gær. Verkið gekk mjög vel. Framkvæmdir við fyrsta áfanga hófust í lok maí 2020 og lauk í desember það sama ár. Seinni áfangi fór af stað í febrúar á þessu ári og lauk formlega við opnunina þann 8. desember. Í fyrri áfanga, sem náði frá Skarhólabraut að Langatanga, var akreinum fjölgað úr þremur í fjórar og þannig komið í veg fyrir umferðarteppur sem oft mynduðust við Lágafellskirkju. Í seinni áfanganum, sem náði frá Langatanga að Reykjavegi, voru fjórar akreinar fyrir en þörf á endurbyggingu vegarins. Stærsta breytingin er sú að akstursstefnur eru nú aðskildar með vegriði á allri leiðinni sem stóreykur umferðaröryggi á veginum.

  • Tölum um sam­göngu­kostnað

    Við undirritun sáttmála ríkis og sveitarfélaga um samgöngufjárfestingar á höfuðborgarsvæðinu fyrir þremur árum kom fram að næstu 15 árin yrði ráðist í einar umfangsmestu samgönguframkvæmdir sögunnar til að bæta samgöngur á svæðinu. Umfang fjárfestinga sáttmálans á tímabilinu er 120 ma. á verðlagi 2019. Um 45% af fjármagninu er ætlað í stofnvegi, um 42% í innviði Borgarlínu og um 13% í göngu- og hjólastíga, umferðarflæðis- og öryggisúrbætur. Bein framlög ríkisins til verkefna samgöngusáttmálans á tímabilinu eiga að nema 30 mö. og bein framlög sveitarfélaganna 15 mö. á verðlagi ársins 2019. Að öðru leyti á að fjármagna fjárfestingarnar með þróun og sölu ríkislands að Keldum og flýti- og umferðargjöldum eða sölu ríkiseigna.

  • Keldur og Keldnaholt  – vel tengt framtíðarhverfi

    Betri samgöngum var falið að annast þróun og sölu ríkislands að Keldum með samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu haustið 2019. Allur ábati ríkisins af þróun og sölu landsins mun renna óskertur til uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Í samgöngusáttmálanum var ákveðið að flýta uppbyggingu framtíðarhverfis að Keldum sem og framkvæmdum við Borgarlínu sem fara á um hverfið endilangt. Þjónusta Borgarlínu er ein helsta forsenda þess að hægt sé að umbreyta Keldum og Keldnaholti í þétta og blandaða byggð með íbúðum, þjónustu og atvinnuhúsnæði. Áætlaður ferðatími með Borgarlínu milli Keldna og Lækjartorgs er um 20 mínútur.

  • Nýr samgöngustígur vígður

    Nýr samgöngustígur var vígður í Mosfellsbæ í gær. Hann er hluti af hjólastígum Samgöngusáttmálans sem fjármagnaðir eru af Betri samgöngum. Stígurinn liggur í gegnum Ævintýragarðinn frá íþróttasvæðinu við Varmá að nýja hverfinu í Leirvogstungu. Hann er tæplega 1,7 km langur og 5 m breiður. Annars vegar eru tvístefnu hjólareinar og hins vegar hefðbundinn göngustígur. Hluti þessarar framkvæmdar var bygging tveggja nýrra brúa, yfir Varmá og Köldukvísl.