Útboð Betri samgangna
Borgarlínan Lota 2: Hönnun – Frumdrög
Betri samgöngur ohf. óska eftir tilboðum í gerð frumdraga fyrir 2. Lotu Borgarlínu. Gera skal útfærslu af legu Borgarlínu, ásamt staðsetningu og útfærslu stöðva, tillögu að götusniðum, og leiðum fyrir gangandi og hjólandi. Einnig skal gera kostnaðaráætlun fyrir framkvæmd verksins og framkvæma önnur þau verkefni sem nánar er lýst í útboðsgögnum.