Skip to content
Betri samgöngur

Our projects

Borgarlínan

Borgarlínan er hágæða almenningssamgöngukerfi sem mun aka að mestu í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig styttist ferðatími og tíðni ferða eykst.

Borgarlínan verður byggð upp í sex lotum á árunum 2024–2040 og tengir saman sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Framkvæmdum lokið

3 af 9

Áætluð verklok allra 9 framkvæmda er 2040.

Heildarfjárfesting

127.936 m.

42% af fjárfestingum Samgöngusáttmálans. Áætlað Q4 2024.

Tölvugerð mynd af Borgarlínustöð
Tölvugerð mynd af stöð Borgarlínu.

Phases and works

Illustrative map — an interactive map follows later.

Lota 1: Ártúnshöfði → Hlemmur → Hamraborg

Fyrsta lota Borgarlínunnar liggur frá Hamraborg í Kópavogi, yfir nýja Fossvogsbrú, gegnum miðbæ Reykjavíkur og nýtt Vogahverfi að Krossamýrartorgi á Ártúnshöfða. Leiðin er alls um 14,5 km í sérrými og samhliða er gert ráð fyrir um 18 km af hjóla- og göngustígum.

Í framkvæmd971 m.kr.

Lota 2: Hamraborg → Lindir

Í annarri lotu Borgarlínunnar verða lögð sérrými frá Lindum í Kópavogi til Hamraborgar eða um 3 km leið. Þar sem sérrými 2. lotu munu tengjast sérrýmum fyrstu lotu.

Frumdrög3,073 m.kr.

Lota 3: Mjódd → BSÍ

Í þriðju lotu Borgarlínunnar verður lagt sérrými frá BSÍ, meðfram Miklubraut að Vogastöð og áfram eftir Reykjanesbraut að Mjódd, um 6,3 km leið.

Frumdrög592 m.kr.

Lota 4: Fjörður → Miklabraut

Fjórða lota Borgarlínunnar mun liggja frá miðbæ Hafnarfjarðar, í gegnum Garðabæ og inn í Kópavog, um Smárann og Hamraborg að Suðurlandsbraut/Laugavegi, samtals um 9,5 km leið sem í framhaldinu mun tengjast við fyrri lotur.

Frumdrög8,000 m.kr.

Lota 5: Ártún → Spöng

Fimmta lota Borgarlínunnar mun liggja frá Krossmýrartorgi á Ártúnshöfða og ferðast í gegnum Keldur að Spöng í Grafarvogi, samtals um 4,6 km leið.

Frumdrög971 m.kr.

Lota 6: Ártún → Háholt

Sjötta lota Borgarlínu felst í sérrými sem lagt verður frá Háholti í Mosfellsbæ sem síðan fer í gegnum Blikastaðaland og Keldnaholt uns það tengist öðrum lotum Borgarlínunnar á Krossmýrartorgi á Ártúnshöfða.

Frumdrög971 m.kr.

Social benefits

More options for a fast-growing city

High-quality public transport is an essential part of a varied future transport mix — an improvement whether you walk, cycle, take public transport or drive.

Share of investment

  • Borgarlína 42%
  • Stofnvegir 42%
  • Göngu- og hjólastígar 13%
  • Umferðarstýring og öryggi 3%
Transport Agreement investment split by project category
Borgarlína42%
Stofnvegir42%
Göngu- og hjólastígar13%
Umferðarstýring og öryggi3%

Share of investment

In the 2024 update of the Transport Agreement, 42% of its funding is allocated to Borgarlínan infrastructure.

More on funding